Lýsing
Styrktarþjálfun fyrir hlaupara er sértæk þjálfun fyrir þá sem hafa lagt hlaup fyrir sig.
Þjálfunin gengur út á að styrkja svæði sem mæðir hvað mest á hjá hlaupurum og þannig ná fram meiri styrk, minnkuðum líkum á meiðslum, auknum hraða ásamt því öðlast betri og dýpri skilning á virkni líkamans og vöðvakerfisins.
Styrktarþjálfun er órjúfanlegur hluti á þjálfun þegar kemur að forvörn gegn meiðslum sem og bætingar.
Tímarnir eru í boði þriðjudaga og fimmtudaga kl 18.00