Lýsing
TRAIN STRONG er þjálfunarkerfi sem byggist upp á styrktarþjálfun, hreyfanleika sem og liðleikaþjálfun. Unnið er í grunninn með kraftlyftingaþjálfun, hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu.
Grunn áherslan liggur í réttum hreyfiferlum sem og að losa upp svæði sem gætu hugsanlega hindrað framfarir.
TRAIN STRONG er þjálfunarkerfi sérsniðið að þeim sem vilja leggja meiri áherslu á styrktaraukningu.
Þjálfarar: Hjálmar Andrésson – kraftlyftingamaður, sjúkraþjálfaranemi ásamt Guðjóni Inga Sigurðssyni, kraft- og ólympískarlyftingar, einkaþjálfari og styrktarþjálfari