Um okkur

train station

„Ég var búin að starfa sem einkaþjálfari í 20 ár, standandi yfir einni til fjórum manneskjum og horfandi útundan mér á allt fólkið sem var mætt dag eftir dag, gerandi annaðhvort ranga æfingu eða æfinguna rangt og fannst  vera kominn tími á líkamsrækt þar sem fólk gæti treyst því að það fengi faglega aðstoð við þjálfun nákvæmlega þar sem það er statt, heimilislegt andrúmsloft ásamt aðgengi að fullbúinni aðstöðu til styrktarþjálfunar“

Sif Garðarsdóttir

Eigandi og stofnandi Train Station

Við höfum metnað
fyrir því að bjóða upp á
hágæða þjónustu þegar
kemur að þjálfun

Fólkið okkar

Sif Garðarsdóttir

Stofnandi og eigandi Train Station.

Sif hefur 26 ára reynslu af þjálfun. Hún hefur sótt sér menntun víða.

Lengst af hefur Sif starfað sem einkaþjálfari en hún er einnig heilsumarkþjálfi og er með ADV level menntun í höfðubeina- og spjaldhryggjarmeðferð.

Menntun:

Heilsumarkþjálfi frá Instititute for Intergrative Nutrition, ISSA Specialist in Performance Nutricion (SPN), ISSA Specialist in Sport Conditioning (SSC), Peak Pilates I, Fit Pilates, Life Fitness level I og II, FIA einkaþjálfara nám, ADV level Cranio Sacral Therapist auk ýmissi annarra kúrsa.

Bjarki Þór Valdimarsson

Bjarki er einn af lykilmönnum Train Station. Hann er með Bs gráðu í  íþrótta- og heilsufræði og hef starfað hjá Train Station síðan 2023.

Bjarki hefur brennandi áhuga á þjálfun og hefur góða reynslu í þjálfun byrjendum sem og lengra komna.

Bjarki elskar nýjar áskoranir og reyni alltaf að bæta hæfnina sína sem þjálfari.

Sturluð staðreynd um Bjarka: Hann er lygilega góður í upphífingum, sjeik á liðið ef þú getur unnið hann í upphífingum!

Margrét Snæfríður Havsteen

Margrét hefur starfað sem einkaþjálfari og jógakennari frá árinu 2020.

Margrét hef síðan þá haft það að leiðarljósi að styðja fólk í að öðlast meiri vellíðan, styrk og jafnvægi – bæði líkamlega og andlega.

Hún hefur kennt fjölbreytta jógatíma, þar á meðal hot jóga, yin jóga, opna tíma og námskeið fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna.

Markmið mitt er að skapa öruggt rými þar sem þú getur mætt sjálfum/sjálfri þér á þínum eigin forsendum og styrkst í líkama og huga.

Margrét hefur brennandi áhuga á heilbrigðum lífsstíl og hollu matarræði og trúir því að hreyfing, næring og jafnvægi í daglegu lífi séu lykillinn að góðri líðan og bættri heilsu.

Benjamín Daði Antoníusson

Benjamín er með Bs gráðu í  íþrótta- og heilsufræði og stundar nú í meistaranámi í sama fagi.

Benjamín hefur góða reynslu af styrktarþjálfun, hefur unnið við heilsufarsmælingar fyrir rannsóknir hjá Háskóla Íslands og er alltaf til í að læra meira.

Benjamín elskar allt sem tengist hreyfingu, heilsu og útiveru!

Benjamín finnst skipta miklu máli að hreyfing sé bæði skemmtileg og gefandi og hefur það að markmiði að hjálpa fólki að líða vel og ná sínum markmiðum.

Páll Haraldsson

Páll hefur starfað sem karateþjálfari í 8 ár og er með Bs gráðu í  íþrótta- og heilsufræði og stundar nú í meistaranámi í sama fagi.

Páll hefur víðtæk þjálfunarréttindi frá ÍSÍ.

Páll hefur brennandi áhuga á heilbrigðum lífstíl

Kýktu á okkur

Address:

Dugguvogur 44
104 Reykjavík
trainstation@trainstation.is